Kylie Jenner sýnir á sér nýja og persónulegri hlið en hún hefur gert hingað til. Í nýrri og lengri stiklu fyrir raunveruleikaþátt Kylie Jenner Life of Kylie fá áhorfendur og aðdáendur að sjá persónulegri hlið af Kylie en sést hefur fram að þessu. Í þáttaröðinni nýju verða átta þættir en fyrsti þátturinn verður sýndur 6. júlí næstkomandi. Kylie Jenner hefur verið fyrir framan myndavélina síðan hún var aðeins níu ára, frá því að Keeping Up With the Kardashian hófu göngu sína.
„Það eru tvær hliðar af mér. Það er ímynd sem ég finn fyrir stöðugri pressu að halda við, síðan er það sú sem ég er í kringum vini mína. Þessi þáttur er gjöf fyrir aðdáendur mína,“
segir Kylie í stiklunni. Sjáðu stikluna hér fyrir neðan.