fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Þóranna. „Hvað með pabbann? Ekki gat ég hugsað mér þetta sjálf af hverju þá hann?“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 12. maí 2017 13:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóranna Friðgeirsdóttir skrifar:

„Mamma veistu hvar Pabbi hans Fannars á heima?“ spurði Friðgeir mig í morgun um leikskólavin sinn og nágranna. „Hann er nefnilega núna hjá pabba sínum“.

Árið 2007 skildum ég og barnsfaðir minn með eina átján mánaða gamla stúlku. Í nokkra mánuði reyndum við að hafa þetta „helgarpabba“ kerfi eins og áætlað var. Svo bauðst mér vinna fyrir sunnan í rúmlega mánuð sem ég tók og skildi snúlluna eftir hjá pabba sínum. Ég var hræðileg móðir, hvernig gat ég gert þetta? Skilið barnið svona eftir hjá pabba sínum (sem er mjög ástríkur og góður pabbi), þvílík sjálfselska! Hefði ekki verið meiri sjálfselska að rífa barnið upp úr leikskóla og frá sínu umhverfi fyrir nokkurra vikna dvöl í Reykjavík? Þannig leit ég alla vega á það. Eftir heimkomu gat pabbi hennar auðvitað ekki hugsað sér að detta í helgarpabbakerfið aftur. Hann las rannsókn sem var gerð í Svíþjóð um að þau börn sem alast upp viku og viku hjá fráskildum foreldrum koma almennt betur út úr skilnaðinum. Þau eiga betri samskipti við báða foreldra og líða almennt betur en í svona helgarkerfi. Ég gat ekki annað en alla vega gefið því séns. Um tveggja ára byrjar dóttir okkar að vera viku hjá mömmu sinni og viku hjá pabba sínum. Fólk gapti enn og aftur. „Þetta á aldrei eftir að endast? Hvað eru þið að hugsa? Hvernig geturðu þetta? Verið frá barninu þínu í heila viku í senn? Er þetta ekki erfitt fyrir barnið?“

Þóranna Friðgeirsdóttir

Ég skal viðurkenna það að það tók mann alltaf svona þrjá daga að byrja að njóta þess að vera barnlaus. Samviskubitið að naga mann.

En hvað með pabbann? Mér fannst svo skrýtið að fólki þætti bara almennt í lagi að maðurinn sem bjó til barnið með mér, ætti jafn mikið í barninu og ég, elskaði hana jafn mikið og ég og langaði almennt að hafa hana hjá sér alltaf, ætti bara að geta hitt barnið 4-6 daga í mánuði ? Fjóra daga af 31 dögum? Ekki gat ég hugsað mér það sjálf af hverju þá hann?

Við gerðum þetta í nær átta ár. Frá því hún var tveggja ára til tíu ára var hún viku hjá mér og viku hjá pabba sínum. Þar sem ég var á leigumarkaðinum en hann ekki þá passaði ég mig bara á því að reyna að búa í sama hverfi. Það sem við uppskárum var ofsalega fallegt samband milli okkar allra og milli barns og föður. Við náðum að finna okkur án hvors annars. Það er einn kosturinn við að fá barnlausu vikuna, maður fær tíma til að finna sjálfan sig upp á nýtt, fara úr „við“ í „ég.“

Barnið okkar er orðið 11 ára í dag. Við mæðgur fluttum í annað bæjarfélag í fyrra en með aðstoð snjallsíma er pabbinn aldrei langt undan.

Mér hlýnar ofan í dýpstu hjartarætur þegar ég heyri af foreldrum sem sem hafa börnin sín í viku og viku. Ég veit að það hentar ekki öllum börnum eða foreldrum, en ég elska að „helgarpabba“ kerfið er nánast orðið úrelt.

Mér finnst frábært þegar báðir foreldrar taka virkan þátt í uppeldi barnanna þrátt fyrir sambúðaslit. Að það sé verið að átta sig á því að pabbar eru jafn mikilvægir og mömmur. Þegar að foreldrar geta sett sinn ágreining út fyrir börnin, það er ekki þeim að kenna að sambandið gekk ekki upp.

Í dag á ég þrjú börn með tveimur pöbbum, bestu pöbbum sem ég gæti hugsað mér. Þeir elska börnin sín alveg jafn mikið og ég, þeir kyssa og knúsa alveg jafn mikið og ég. Þeim er ekki sama.

Takk þið tveir.

Til hamingju með 2017, ég er svo glöð í hjartanu að fólk sé að komast út úr kassanum sínum og átta sig á því að hlutirnir eiga ekki að vera svona eða hinsegin.

Pistillinn birtist fyrst á kaffið.is – Bleikt fékk góðfúslegt leyfi frá Þórönnu að birta pistilinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Manchester United skellir verðmiða á McTominay

Manchester United skellir verðmiða á McTominay
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Arteta horfir til San Sebastian – Með augastað á þremur leikmönnum

Arteta horfir til San Sebastian – Með augastað á þremur leikmönnum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu óhugnanlega mynd: Frægur maður nær óþekkjanlegur eftir slagsmál

Sjáðu óhugnanlega mynd: Frægur maður nær óþekkjanlegur eftir slagsmál
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Harmleikurinn í Bangkok: Leysti úr fjölskylduerjum með því að drepa sig og fimm aðra með blásýru

Harmleikurinn í Bangkok: Leysti úr fjölskylduerjum með því að drepa sig og fimm aðra með blásýru
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“