Á níunda áratugnum þegar Naglinn sleit barnsskónum tróndi brauð á toppi fæðupýramídans. Það var varla máltíð með mönnum nema að slæsa af hveiti væri annaðhvort í aðalhlutverki eða hvíldi slök á kantinum. Normalbrauð með osti í eldhúsinu hjá ömmu. Rúgbrauð með smjöri með mánudags ýsunni. Samsölubrauð með rækjusmurosti á milli í nesti í leikskólann.
[ref]http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/lykillinn-ad-hugarro-jafnvaegi-og-heilbrigdu-sambandi-vid-mat-er-ad-strika-ut-bannlistana[/ref]