fbpx
Laugardagur 13.desember 2025

Rúna: „Á að verðlauna alla góða hegðun?“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 8. júní 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúna Sævarsdóttir býr með manninum sínum og þremur börnum í Noregi. Hún stundar fjarnám í sálfræði við Háskólann á Akureyri og er þar að auki bloggari á Öskubuska.is. Hún skrifaði pistil um að verðlauna góða hegðun barna sem birtist fyrst á Öskubuska.is og gaf Bleikt góðfúslegt leyfi að birta hann hér fyrir lesendur okkar.

Rúna Sævarsdóttir

Ég og vinkona mín áttum gott spjall um daginn. Eins og svo oft áður leiddist umræðan út í barna uppeldi. Við erum sammála því að margt hefur þróast til hins betra í þeim efnum í gegn um tíðina. Áður fyrr tíðkaðist mikið að „stytta sér leið“ í uppeldinu. Þá er ég að tala um þegar ýmsum aðferðum var beytt til þess að ná fram æskilegri hegðun á sem hraðasta máta. Til dæmis með því að hræða börn með grýlum, rassskella eða ógna á annan hátt. Sem betur fer er hugsunarmátinn búinn að breytast þegar kemur að uppeldi. Við höfum það flest öll að markmiði að ala upp sjálfstæða og heilsteypta einstaklinga sem eru tilbúnir að takast á við lífið.

Til þess að ná þessu markmiði beitum við uppbyggilegum aðferðum. Við hvetjum börnin okkar til dáða og verðlaunum þau fyrir góða hegðun. En eigum við að verðlauna alla góða hegðun?

Ég hef oft staðið sjálfa mig að því að verðlauna hegðun sem er í rauninni ekki „góð“ hegðun heldur bara venjuleg hegðun. Þá meina ég að lofa verðlaunum fyrir að haga sér almennilega í búðinni, fyrir að týna upp leikföng eða eitthvað þess háttar. Við vinkonurnar fórum að velta fyrir okkur hvort að þetta væri góð þróun eða hvort við værum ekki komin aðeins of langt frá hinum gullna meðalveg. Á það að vera einhver valkostur að haga sér eins og maður á meðan maður gengur í gegn um verslun og þarf að verðlauna þá hegðun sérstaklega þegar hún á sér stað? Það sama gildir þegar kemur að því að ganga frá leikföngunum sínum. Getur verið að þetta sendi röng skilaboð? Skilaboð um að það megi haga sér eins og bavíani í búðinni og þú verðir að fá verðlaun ef þú átt að haga þér eins og maður?

Nú er ég alls ekki að segja að það eigi aldrei að verðlauna börn og að sjálfsögðu geta verðlaun virkað fyrir börn sem þykir mjög krefjandi að fara í búðir. Ég held að maður þurfi samt sem áður að vera svolítið vakandi yfir því hvaða og hvernig hegðun maður er að verðlauna og setja sanngjarnar kröfur á börnin.

Pistillinn birtist fyrst á Öskubuska.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“

Stefán segir stjórnarmann bersýnilega hafa komið sér undan að ræða málefnið – „Eins og það væri bara einhver verkaskipting og kæmi honum ekkert við“
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

„Ísfólkið hefur oft verið talað niður og kallaðar „húsmæðraklám““

„Ísfólkið hefur oft verið talað niður og kallaðar „húsmæðraklám““
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.