Þetta salat er einn af mínum uppáhalds réttum til að bjóða uppá þegar ég fæ fólk í mat til mín. Þetta er ótrúlega einfalt að útbúa og hægt að undirbúa að stórum hluta fyrir fram og það er því einstaklega þægilegt þegar maður er að fá gesti og þarf að huga að öðrum hlutum líka eða er í tímaþröng. Þó þetta sé salat er það mjög matarmikið útaf andabringunni og því er það alveg full máltíð eitt og sér með góðu brauði. Einnig hef ég notað þetta salat sem smárétt í veislu með öðrum smáréttum og ber það þá fram i litlum plastskálum.
Andabringusalat
Byrjið á því að elda andabringurnar. Ég steiki mínar á sjóðheitri pönnu í stutta stund á fituhliðinni og set þær svo í ofninn með kjöthitamæli og hita upp í 61°. Þetta er hægt að gera daginn áður en salatið er borið fram.
Skerið niður kál, vorlauk og konfekttómata. Skerið andabringu í þunnar sneiðar. Ristið furuhnetur og klippið niður döðlur í lita bita. Salatinu er svo raðað upp og þá er byrjað á káli, tómötum og rauðlauk og ofan á það fara döðlur og furuhnetur.
Þá er andabringusneiðunum raðað yfir grænmetið og fetaostinum stráð yfir. Loks er sósunni sprautað fallega yfir allt saman. Gott er að bera salatið fram með smá auka sósu og góðu súrdeigsbrauði.