Það er vel þekkt að holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir heilsu okkar og vellíðan. Umfjöllun um mataræði hefur að mestu snúið að því hvað við borðum en mun minna hefur verið fjallað um það hvernig við borðum. Rannsóknir hafa sýnt að það ásamt viðhorfum okkar og venjum í sambandi við máltíðir skiptir einnig miklu máli og þess vegna er nauðsynlegt að huga vel að þessum þáttum og stuðla að góðum matarvenjum og heilbrigðu sambandi við mat.
[ref]http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/heilbrigdar-matarvenjur[/ref]