Á laugardaginn 26. ágúst næstkomandi verður opið hús í Heilsumiðstöðinni Ármúla 9, kl. 11.30-16.00. Ókeypis er á alla viðburði og býður Heilsumiðstöðin alla velkomna. Meðal þeirra viðburða sem verða í boði fyrir almenning er fyrirlestur Dr. Panos Vasiloudes um árangur Harklinikken.
Harklinikken er danskt fyrirtæki sem er að opna í fyrsta skipti á Íslandi. Harklinikken var stofnað 1979 og hefur síðan þá verið leiðandi í meðferð sem stuðlar að auknum hárvexti. Yfir 100 þúsund manns víðsvegar um heim hafa notið árangursríkrar meðferðar hjá sérfræðingum Harklinikken. Dr. Panos Vasiloudes, starfandi húðlæknir í Tampa, Flórída, flytur erindi þar sem fjallað verður um árangur sem náðst hefur með meðferð Harklinikken.
Einnig mun Kristján Skúli Ásgeirsson, brjóstaskurðlæknir, fjalla um áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðir hjá konum með BRCA stökkbreytingar. Hér má nálgast viðburðinn á Facebook
Fyrr um morguninn verður workshop sem Ástralinn Douglas Wilson stýrir en hann á magnaða sögu að baki. Hann var fjárfestir sem fékk heilaæxli og gekk undir hrikalega erfiðan uppskurð. Ári eftir aðgerðina hljóp hann sjö maraþon í sjö heimsálfum á sjö dögum. Fyrir þetta magnaða afrek komst hann í heimsmetabók Guinness. Hann segir að árangrinum náði hann með því að borða rétt og stunda jóga og hugleiðslu.