„Ekki góður sársaukadagur. Takk elsku B fyrir að senda mér þessa kósí peysu,“ skrifar Lady Gaga á Instagram. „Heldur mér hlýrri úti í hengirúminu svo ég geti notið trjánna, himinsins og sólarinnar og andað djúpt. Mér finnst ég heppin að vera svona elskuð.“
Lady Gaga og Beyoncé hafa þekkst lengi, þær unnu saman árið 2010 í laginu Telephone og hafa verið vinkonur síðan.
Eins og áður hefur komið fram hefur Lady Gaga frestað hluta af tónleikaferðalagi sínu vegna veikinda.