fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Bleika slaufan – forsala byrjar í dag

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 20. september 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bleika slaufan 2017 verður opinberuð þann 29. september næstkomandi, en fram að þeim degi hvílir leynd yfir útliti hennar.

Forsala Bleiku slaufunnar hófst í dag og ef hún er keypt í forsölu verður hún send í umslagi með Póstinum til kaupanda 28. september þannig að hún ætti að berast til kaupanda 29.-30. september. Verð slaufunnar er 2.175 kr. með sendingarkostnaði.

Ása Gunnlaugsdóttir

Ása Gunnlaugsdóttir hönnuður og gullsmiður hannaði slaufuna en hún bar sigur úr býtum í samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar 2017. Skartgripir hennar eru seldir í skartgripaverslunum víða um Ísland og eru þekktir fyrir stílhreina og vandaða hönnun.

Ása hefur víðtæka reynslu í hönnun og smíði skartgripa og hefur starfað sem hönnuður á Íslandi, Finnlandi og í S-Kóreu. Ása lauk MA-prófi í iðnhönnun við University of Art and Design (UIAH) í Helsinki og BA-prófi í gull- og silfursmíðum frá Lahti Design Institute í Finnlandi. Í Finnlandi starfaði hún með námi sem gullsmiður hjá stærsta skartgripafyrirtæki Finnlands, Kalevala Jewelry. Eftir nám kenndi hún skartgripahönnun við UIAH. Síðar rak hún vinnustofu í Helsinki.

Söfnunarfé Bleiku slaufunnar 2017 rennur til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Ráðgjafarþjónustan veitir stuðning, fræðslu og ráðgjöf til krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra þeim að kostnaðarlausu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Gekk frá hatrömmum skilnaði degi fyrir andlátið

Gekk frá hatrömmum skilnaði degi fyrir andlátið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sverrir staðfestur sem leikmaður Panathinaikos

Sverrir staðfestur sem leikmaður Panathinaikos
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.