fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Bjarki gefur út sitt fyrsta lag við góðar viðtökur – Saga er instrumental

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 19. september 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarki og Þórunn

Bjarki Ómarsson, gaf nýlega út fyrsta lagið undir eigin nafni, en lagið er instrumental og í kvikmyndastíl, en Bjarka langar að starfa meira á þeim vettvangi.

Lagið heitir Saga og vann Bjarki það í samstarfi við vinkonu sína, Þórunni. Myndbandið við lagið gerðu þau síðastliðið sumar á Flateyri og lifnar saga lagsins við með myndbandinu.

„Það hefur alltaf kitlað mig að gefa út píanótónlist, mónótóníska tónlist, lög sem eru ekki hefðbundin popplög með viðlagi og versi,“ segir Bjarki, sem hefur alltaf verið með tónlistina í blóðinu.

„Pabbi setti trommusett fyrir framan mig þegar ég var fimm ára og það hefur alltaf verið mikil tónlist í fjölskyldunni. Ég hef alltaf verið í hljómsveitastússi, en þetta lag er svona mitt og ég hef kannski ekki þorað að gefa mína tónlist út áður. Það hefur alltaf verið mitt áhugamál að semja og spila, en hingað til hef ég ekki farið með þessa tegund af tónlist lengra. Það er oft þægilegra að fela sig á bak við að vera í hljómsveit, en vera bara einn,“ segir Bjarki, sem starfar með hljómsveitunum The Retro Mutants og Frost, sem Bleikt hefur áður fjallað um.

Lagið Saga

„Ég ákvað að gefa lagið út með vinkonu minni Þórunni, en við höfum unnið saman nokkrum sinnum í gegnum árin. Okkur langaði alltaf að vinna meira saman, síðan kom að því að hún var að flytja til Frakklands, þannig að við kýldum á að gera lagið og taka upp myndbandið. Það rak svolítið á eftir mér að hún væri að flytja út.“

En af hverju varð Flateyri fyrir valinu? „Okkur langaði að fara út á land og taka upp svona ferðasögu. Frændi minn er líka þar og hjálpaði okkur með myndbandið. Þegar það er komið myndband við lagið þá er maður farinn að segja sögu. Myndbandið kom vel út og betur en við áttum von á. Viðbrögðin við myndbandinu voru líka meiri en ég átti von, ég hélt það væru ekki margir að hlusta á instrumental tónlist og það er greinilega markaður fyrir slíka tónlist.“

Langar að starfa í kvikmyndaiðnaðinum

„Þegar ég horfi á kvikmyndir hlusta ég mikið eftir tónlistinni. Ég fékk viðbrögð frá fólki í kvikmyndaiðnaðinum við laginu, en ég hef einmitt mikinn áhuga á kvikmyndatónlist og að starfa við hana.“

Bjarki stefnir á að gefa út fleiri lög, áður en hann hugsar hvort að hann gefur út plötu. „Ég lít frekar á þetta sem tónverk, en hugmynd að plötu. Næsta verkefni er bara næsta lag og næsta myndband.“ Bjarki á hinsvegar nóg af lögum í „skúffunni“ og segir að það væri draumur að geta starfað eingöngu við tónlistina í framtíðinni.

 

Bjarki Ómarsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

PSG kemur og fer – Byrjaðir að horfa aftur til Ítalíu

PSG kemur og fer – Byrjaðir að horfa aftur til Ítalíu
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Dularfullt fjöldamorð í Bangkok – Talin hafa drukkið blásýrublandað te á lúxushóteli

Dularfullt fjöldamorð í Bangkok – Talin hafa drukkið blásýrublandað te á lúxushóteli
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hundar fluttir í hitasjokki á dýraspítala á Akureyri – Einn nærri dauða en lífi

Hundar fluttir í hitasjokki á dýraspítala á Akureyri – Einn nærri dauða en lífi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Margir hissa er þeir heyrðu af launum nýjasta leikmanns Manchester United

Margir hissa er þeir heyrðu af launum nýjasta leikmanns Manchester United
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Flottur sigur í Póllandi tryggði stelpunum ekki fyrsta sætið

Flottur sigur í Póllandi tryggði stelpunum ekki fyrsta sætið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Pólverjar ekki alveg með hlutina á hreinu: Þorvaldur óvænt í sviðsljósinu – Sjáðu skondið myndband

Pólverjar ekki alveg með hlutina á hreinu: Þorvaldur óvænt í sviðsljósinu – Sjáðu skondið myndband

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.