Selena segir strigaskó hafa breytt lífi sínu og að skóskápur hennar í dag samanstandi að mestu af strigaskóm (hún tók 20 pör með sér í myndatökuna í New York).
„Mér finnst mjög spennandi að vera hluti af Puma fjölskyldunni,“ segir Selena. „Puma sameinar íþróttafatnað og tísku. Það er frábært að sjá þau áhrif sem Puma hefur haft á stíl og menningu og mér er spennt fyrir að vera hluti af því. Ég vona að við getum skapað eitthvað mjög sérstakt saman. Við erum nú þegar með spennandi verkefni í vinnslu.“
Selena gekkst í sumar undir aðgerð þar sem hún fékk nýtt nýra.