Þáttastýran bráðskemmtilega Ellen DeGeneres brá sér inn í búningsherbergi Jennifer Lopez fyrir sýningu þeirrar síðarnefndu í Las Vegas. Ellen skellti sér svo auðvitað á sýninguna sjálfa og skemmti sér að því er virðist konunglega.
Sýning Jennifer fer fram í Planet Hollywood og var sú fyrsta 20. janúar 2016, 65 sýningar eru búnar af 108 sem voru áætlaðar, en síðasta er áætluð 26. maí 2018.