Alexis Olympia Ohanian, Jr., dóttir Serenu Williams og Alexis Ohanian er komin með eigin Instragramreikning.
Alexis fæddist 1. september síðastliðinn og þrátt fyrir að vera bara búin að pósta tveimur myndum á Instagram (eða mamma og pabbi réttara sagt) þá er hún komin með 38 þúsund fylgjendur.