Heimildir herma að parið Selena Gomez og The Weeknd séu byrjuð að búa saman, í leiguíbúð í hjarta Greenwich Village á Manhattan. Þau munu þó ekki dvelja þar mikið að ráði til að byrja með, þar sem Gomez er við upptökur á mynd Woody Allen í New York og The Weeknd er á tónleikaferðalagi og næsti leggur er á Nýja-Sjálandi og Ástralíu til 14. desember næstkomandi.