Skórnir eru eins og sjá má með vísun til sögunnar um Fríðu og Dýrið. Skórnir eru úr mjúku leðri, með laufmynstri úr silfri á hælunum og á sólanum er mynd af Fríðu og Dýrinu. Skórnir kosta um 150 dollara og á Etsy má sjá ummæli frá ánægðum kaupendum um hversu vel skórnir reyndust brúðinni á stóra deginum. Okkur á Bleikt finnst skórnir svo fallegir að það er jafnvel óþarfi að bíða eftir bónorði, þetta eru líka dásamlegir spariskór.
Fleiri skó í anda Disney ævintýranna má finna á síðu Becci Boo.