Töframaðurinn David Copperfield: Ef ég gæti látið þig hverfa og birtast aftur hvar sem er í heiminum. Hvar myndir þú vilja enda og af hverju?
Rihanna: Tíu mínútum áður en ég missti meydóminn og ég læt þig standa við þetta loforð.
ELLE: Hvenær notaðir þú fyrst varalit?
Rihanna: Varalitur kemur mér alltaf í vandræði. Hvort sem það var heima þegar ég var barn eða fyrstu árin mín í bransanum, þá vildi ég alltaf vera með varalit. Í dag er varalitur leynivopnið mitt.
Hvað er það furðulegasta sem þú hefur gert/prófað fyrir fegurðina og myndir þú gera það aftur?
Lífstykki! Og ég myndi klæðast því aftur. Ég myndi klæðast því alla daga ef ég gæti.
Viðtalið má lesa í heild sinni í nýjasta tölublaði ELLE sem kemur í sölu 19. september næstkomandi.