fbpx
Sunnudagur 13.apríl 2025

Stjórnmálamenn skælbrosandi með snjallsímana á lofti

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 30. október 2017 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur fékk sér smá næringu fyrir útsendingu. Eins og sjá má voru allir kampakátir rétt fyrir útsendinguna. Vonandi er þessi gleði merki um góða samvinnu flokka eftir kosningar.

Formenn stjórnmálaflokkana mættu í beina útsendingu hjá RÚV á laugardagskvöldið.

Gaman var að fylgjast með þeim þar sem þeir voru allir með snjallsímana á lofti, enda nýjar tölur að berast jafnóðum og minntu helst á unglinga nútímans.
Léku þeir á alls oddi hver við annan og er það vonandi merki um gott samstarf á þingi.

Mig dreymir: Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata er dreyminn á svip.
Samherjar: Inga Sæland formaður Flokks fólksins og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins voru eldhress í sminkherberginu.
„Makeover“: Sigmundur og Inga komin í stólinn og í öruggar hendur Rögnu Fossberg og samstarfskvenna hennar sem sáu um að andlit og hár væri óaðfinnanlegt.
Tékkað á stöðunni: Inga Sæland tékkar á snjallsímanum. Hvort það voru tölur eða árnaðaróskir sem kættu hana vitum við ekki.
Fáðu þér mola: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins skiptast á skoðunum og snakki.
Það er spurning ráðherra: Guð­mundur Krist­ján Jóns­son hefur verið aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar í ráðherrastól hennar.
Græna herbergið: Inga Sæland á leið í Græna herbergið.
Hvíslast á: Svanhildur Hólm Valsdóttir aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fær hvísl í eyra frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Strákarnir og snallsímarnir: Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugssin voru báðir á fullu í snjallsímunum, enda nóg að gera á kosninganótt.
Djúpt sokkinn í símann: Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var þungbrýnn á svip í símanum.
Stund milli statusa: Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar var eins og hinir með símann á lofti.
Hamingjuknús: Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir óska hvor annarri til hamingju.
Strákar í stíl: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins tilheyra kannski ekki lengur sama flokki, en þeir klæða sig í stíl.
Strákarnir með stút: Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar og Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins voru sposkir á svip.

Bleikt fór rúnt á nokkrar kosningavökur fyrr um kvöldið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Skammar KSÍ fyrir nísku – „Mitt ráð að fækka snittum og hætta vínveitingum á VIP svæði sambandsins“

Skammar KSÍ fyrir nísku – „Mitt ráð að fækka snittum og hætta vínveitingum á VIP svæði sambandsins“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Segir umræðuna um Ísland oft á villigötum

Segir umræðuna um Ísland oft á villigötum
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Gagnrýna miklar hækkanir á sumarnámskeiðum Kópavogs – Allt að tvöföldun gjalda

Gagnrýna miklar hækkanir á sumarnámskeiðum Kópavogs – Allt að tvöföldun gjalda
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Hann var í blóma lífsins og hún á leiðinni á toppinn en þá var haldið partý

Hann var í blóma lífsins og hún á leiðinni á toppinn en þá var haldið partý
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Araujo myndi vilja allt að 300 þúsund pund á viku

Araujo myndi vilja allt að 300 þúsund pund á viku
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sveinn Andri sakar ríkislögreglustjóra um óeðlilegan þrýsting á Hæstarétt

Sveinn Andri sakar ríkislögreglustjóra um óeðlilegan þrýsting á Hæstarétt
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Mikill hiti og skiptar skoðanir á stöðunni á Hlíðarenda – „Ég skil alveg að þráðurinn sé stuttur“

Mikill hiti og skiptar skoðanir á stöðunni á Hlíðarenda – „Ég skil alveg að þráðurinn sé stuttur“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.