Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Hrúturinn (21. mars – 19. apríl).
Hrúturinn er stríðsmaður stjörnumerkjahringsins. Hrúturinn er fæddur leiðtogi og tilbúinn að berjast heiftarlega fyrir því sem er honum mikilvægt.
Hrúturinn er líka sigurvegari. Hann er alltaf að berjast fyrir einhverju því hann elskar adrenalínflæðið sem fylgir því að sigrast á nýjum áskorunum. Hann elskar að vera ögrað aftur og aftur. Ef hann sér ekki eitthvað sem áskorun þá fer honum að leiðast.
Ef þú ert í sambandi með Hrúti passaðu þá að halda honum áhugasömum og ögraðu honum reglulega. Reyndu að fá hann til að vera alltaf upptekinn við eitthvað. Vertu ævintýragjarn og stingdu af og til upp á einhverju nýju til að prófa saman. Það mun fá Hrútinn til að vilja vera með þér að eilífu.