Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Bogmaðurinn (22. nóvember – 21. desember).
Bogmaðurinn er mjög metnaðargjarn og vill maka sem trúir á hann og hans sýn. Bogmaðurinn er barn Seifs og getur orðið mjög reiður ef maki hans lætur honum líða illa og færir neikvæðni í líf hans.
Bogmenn trúa því alltaf að góðir hlutir muni gerast í framtíð þeirra og vilja maka sem trúir jafnt og þeir á von og bjartsýni.
Ef þú ert í sambandi með Bogmanni og þú vilt að ást hans til þín endist þá skaltu aldrei hætta að hvetja hann áfram og glæða vonir hans og drauma.