Serían sem um ræðir er Peningaserían, en serían hefur vakið mikla athygli eftir að Odee frumsýndi hana á Ljósanótt í Keflavík árið 2016. Einnig fengu nokkrar vel valdar aðrar myndir að fylgja með.
Odee lék á alls oddi og sagði ritstjóra frá næstu verkefnum sem eru í vinnslu og eru enn sem komið er bara hugmyndir og það er ljóst að hugmyndaflugi og hæfileikum Odee eru engin takmörk sett, það verður gaman að fylgjast áfram með þessum hæfileikaríka og skemmtilega listamanni.
Odee var í viðtali í DV í lok ágúst, sem lesa má hér.