Það mætti ætla að tíðablóð væri blár vökvi miðað við allar dömubindaauglýsingar sem maður hefur séð í gegnum árin, þar sem bláleitum vökva er hellt í dömubindi.
Dömubindaframleiðandinn Bodyform hefur nú birt nýja auglýsingu í nýrri herferð undir myllumerkinu #bloodnormal og í henni kemur fram eins og allir ættu að vita að konum blæðir þegar þær eru á blæðingum.
Í auglýsingunni má einnig sjá konu blæða í sturtu, mann kaupa dömubindi í verslun og mann klæddan sem dömubindi.
Contrary to popular belief, women don’t bleed blue liquid, they bleed blood. Periods are normal. Showing them should be too. #bloodnormal pic.twitter.com/zc9eoFvocQ
— Bodyform (@bodyform) October 17, 2017