Félaginn er Sigfús Þór, 34 ára gröfustjóri, sem elskar ekkert meira en gröfurnar sínar. „Hann er eins og er á lausu, en miðað við múgæsinginn sem myndaðist um hann inni á snappinu evaruza, yrði ég ekki hissa ef hann gengi fljótlega út,“ segir Eva um félaga sinn. „Enda maður með bicep á réttum stað og háklassa gröfuréttindi.“
Sigfús Þór mætti á svæðið í gær og tafði Sigga, eiginmann Evu, frá flísalögn og frágangi inni á baðherbergi þeirra hjóna.
Slökkvið á sjónvarpinu og hallið ykkur aftur.6 mínutur með Sigfúsi Þór Gröfustjóra er veisla!
Posted by Eva Ruza on 16. október 2017
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigfús Þór mætir á svæðið og „aðstoðar“ Sigga því hann lét líka sjá sig í sumar þegar lítið var að gera í öðrum verkefnum.
Félagi minn, Sigfús Þór Gröfustjóri,mætti eldhress in á snappið hjá mér um daginn og gerði skvísurnar sem horfðu alveg kreikrei. Sigfús Þór er 34 ára Gröfustjóri, sem elskar ekkert meira en gröfurnar sínar. Hann er eins og er á lausu, en miðað við múgæsinginn sem myndaðist um hann inni á snappinu evaruza, yrði ég ekki hissa ef hann gengi fljótlega út.Enda maður með bicep á réttum stað og háklassa gröfuréttindi. Hann mun mæta fljótlega aftur á snappið í nýjum ævintýrum.Ef einhver hefur áhuga á að fara á deit með honum,þá er síminn hjá honum: 666-6666, og tölvupósturinn : sigfúsþór@gröfustjóri.orgHann er ekki a Tinder.#inspiratebygydasóloghelgabraga#sigfúsþór#grafaforlife
Posted by Eva Ruza on 27. júlí 2017
Fylgjast má með ævintýrum Sigfúsar Þórs (og Evu líka) á Snapchat: Evaruza.