„Lagið fjallar um að hafa gaman, lifa lífinu, gera flippaða hluti og skemmta sér,“ segir Tara og þegar kom að því að taka upp myndbandið við lagið ákvað Tara að biðja almenning að aðstoða sig.
Tara keyrði hringinn í kringum Ísland á 24 klukkustundum núna í september og áður en lagt var af stað var hún ekki búin að ákveða hvert hún ætlaði að fara, hvar hún ætlaði að stoppa, hvað hún ætlaði að gera, hvern hún myndi hitta, hvað sem er, almenningur átti að ákveða það.
Tara lagði af stað með opið Snapchat og Instagram og reyndi sitt besta til að gera það sem almenningur sagði henni að gera. Lagt var af stað kl. 6 mánudagsmorguninn 18. september síðastliðinn og afraksturinn má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.