Þá er vinnudeginum lokið eða að ljúka hjá okkur flestum og því upplagt að athuga hversu lengi Kardashian fjölskyldan er að vinna fyrir laununum sem við, venjulega fólkið, erum með.
Og það er skemmst frá því að segja: ekki lengi.
Það er til vefsíða sem reiknar þetta hreinlega út fyrir okkur.
Samkvæmt frétt á vef Hagstofunnar voru heildarlaun í fullu starfi að meðaltali 667 þúsund krónur á mánuði, sem gerir 8.004.000 kr. á ári.
Hversu lengi eru Kim, Khloe, Kourtney, Kylie, Kendall og Kris að þéna þá upphæð.
Smelltu hér til að reikna miðað við þín laun.
Kim, sem þénar 51 milljón dala á ári og 5800 dollara á klukkustund, er 13 klukkutíma og 11 mínútur, að vinna sér inn meðal árslaun Íslendinga.
Kylie Jenner er 38 klukkustundir að vinna fyrir þeirri fjárhæð.
Kendall er 38 klukkustundir að vinna fyrir þeirri fjárhæð.
Khloe er 45 klukkustundir að vinna fyrir þeirri fjárhæð.
Móðir þeirra, Kris, er 57 klukkustundir að vinna fyrir þeirri fjárhæð.
Kourtney rekur svo lestina og er 67 klukkustundir að vinna fyrir þeirri fjárhæð.