Þetta byrjaði í ágúst þegar einhver skrifaði athugasemd og kallaði fætur hennar „flippers“ sem mætti á íslensku útleggja sem froskalappir, sem skilar samt ekki alveg neikvæðu meiningunni.
Þrátt fyrir neikvæðar athugasemdir þá hefur Anastasia Reshetova haldið áfram að birta myndir af sér og á einni þeirra er hún meira að segja í froskalöppum, svona til að skjóta neikvæða athugasemdapúka niður.