fbpx
Þriðjudagur 11.febrúar 2025

Hús Stellu frænku – Jólaævintýri Name It

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. nóvember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólin eru hátíð barnanna og það er ekkert betra í desember en að eiga góðar samverustundir með börnunum meðan jólin eru undirbúin og biðin eftir þeim styttist.

Name it gefur út einstaklega fallega bók sem heitir Hús Stellu frænku og er eftir Cecilie Eken. Bókina má nálgast frítt í verslunum Name It.

Emma og Kalli eiga að fara í pössun til Stellu frænku síðustu dagana fyrir jólin. Hún á heima úti í skógi, í stóru húsi sem er fullt af spennandi gripum alls staðar að úr heiminum. Börnin stíga inn í ævintýraheim þar sem ekkert er alveg eins og þau eiga að venjast. Hvaða erindi á litla músin sem er alltaf að skjóta upp kollinum? Og hvaða furðuvera er á sveimi inni í þéttri þokunni? Þora krakkarnir að fara til fundar við hana? Og hvernig geta þau fundið lykilinn mikilvæga, sem Stella frænka er alveg búin að gleyma hvar hún geymir? Ef lykillinn finnst ekki getur hún nefnilega ekki haldið alvöru jól í húsinu sínu. Hús Stellu frænku er bók til að lesa fyrir börnin og eiga notalega stund, slungna sprelli og töfrum.

Bókin skiptist í 25 kafla svo það er hægt að nota hana sem samverudagatal og njóta þess að lesa saman einn kafla (ein opna í bókinni) á hverjum degi fram að jólum í desember.
Þar sem kaflarnir eru 25 er náttúrulega frábært að eiga lokakaflann eftir á jóladag.

Þrisvar í desember kemur svo varningur sem er tengdur ævintýrinu í verslanir Name it og hægt er að fara og nálgast þann varning í verslunum Name it. Nánari upplýsingar er að finna í bókinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Guðlaugur Þór: Áttum ekki að fara í seinna kjörtímabilið með VG – kyrrstaðan var okkur dýrkeypt

Guðlaugur Þór: Áttum ekki að fara í seinna kjörtímabilið með VG – kyrrstaðan var okkur dýrkeypt
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Þingkona segist vera þolandi hryllilegs kynferðisofbeldis

Þingkona segist vera þolandi hryllilegs kynferðisofbeldis
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Kjaftasagan um að reka ætti Úlf verið á lofti í mánuð – „Það gerðist ekkert alvarlegt“

Kjaftasagan um að reka ætti Úlf verið á lofti í mánuð – „Það gerðist ekkert alvarlegt“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Rashford hefur ekki neinn áhuga á að fara í stríð við United með Sancho

Rashford hefur ekki neinn áhuga á að fara í stríð við United með Sancho
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

„Að sleppa frá ofbeldi ætti að marka upphaf nýs lífs, ekki nýja martröð“

„Að sleppa frá ofbeldi ætti að marka upphaf nýs lífs, ekki nýja martröð“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leggur til rosalegt teymi fyrir Rangers – Tvær enskar hetjur sem eru án starfs

Leggur til rosalegt teymi fyrir Rangers – Tvær enskar hetjur sem eru án starfs
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þorri Mar riftir samningi sínum í Svíþjóð og gæti komið heim

Þorri Mar riftir samningi sínum í Svíþjóð og gæti komið heim
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Girls Gone Wild martröðin – „Ég var í áfalli, eiginlega í afneitun“

Girls Gone Wild martröðin – „Ég var í áfalli, eiginlega í afneitun“