Áður en bollinn kom á markað voru nokkrar útgáfur búnar til í verksmiðju Arabia í Finnlandi. Og á meðan á hönnun bollans stóð þá voru nokkrir litir prófaðir þar sem lokaútkoman sést ekki fyrr en búið er að hita bollann upp í ákveðið hitastig.
„Framleiðsla á hverjum Múmínbolla tekur eitt og hálft til tvö ár. Litatónarnir í keramikinu eru alltaf mismunandi eftir samblandi lita og tóna. Og lokahitun bollans á yfir 1200 gráðum celsíus hefur líka áhrif á lokalit bollans,“ segir Nora Haatainen framleiðslu- og markaðsstjóri Múmínvaranna.
„Litirnir fyrir hverja vöru eru alltaf prófaðir hver fyrir sig og stundum verða til nokkrar útgáfur af hverjum bolla í framleiðsluferlinu.“
Árið 2006 þegar bollinn var kominn í framleiðslu var ljósbleikur litur notaður í bakgrunni hans, eftir prófanir var dekkri liturinn endanlega valinn.
„Í þessum bolla skiptu litatónar og teikning máli. Dekkri og hlýrri litatónn var mun betra val fyrir ástfangna Míu. Liturinn var líka í stíl við aðra múmínbolla á þeim tíma.“
Sumar af prótótýpum Múmínbollana voru til sýnis á Múmínbolla sýningu Arabia árið 2014, Mugs with a story to tell – Moomin. Ljósbleika útgáfa bollans var ekki þar, en hann kom fram í dagsljósið núna í nóvember í Finland 100 partýi sem skipulagt var af Fiskars Group.
Á þeim viðburði var góðgerðaruppboð þar sem einstakar finnskar hönnunarvörur voru boðnar upp. Bollinn ljósbleiki var þar á meðal. Og það var fyrirtæki Tove og Lars Jansson, Moomin Characters Oy Ltd., sem stofnað var á sjötta áratugnum, sem keypti þennan einstaka bolla til að bæta við bollasafn fyrirtækisins. Allur ágóði uppboðsins rann til SOS Children´s Villages Finland.