Innihald:
3 meðalstórir kúrbítar (um það bil 4 bollar skorið)
2 stór egg
2 pressaðir hvítlauksgeirar
½ teskeið oregano
3 bollar parmesan
½ bolli maíssterkja
salt
malaður svartur pipar
rauðar piparflögur
2 teskeiðar fersk steinselja
marinara sósa, sem ídýfa
Leiðbeiningar:
1) Hitaðu ofninn í 200°C. Skerðu kúrbítana niður eða maukaðu þá í matvinnsluvél. Pressaðu allan aukavökva úr blöndunni.
2) Settu kúrbít, egg, hvítlauk, oregano, 1 bolla af mozzarella, parmesan og maíssterkju saman í skál og kryddaðu með salt og pipar. Hrærðu saman.
3) Færðu „deigið“ yfir á bökunarpappír og flettu út. Bakaðu í um það bil 25 mínútur.
4) Dreifðu 2 bollum af mozzarella yfir ásamt rauðum piparflögum og steinselju og bakaðu þar til osturinn er búinn að bráðna, sirka 8-10 mínútur.
5) Skerðu niður og berðu fram ásamt sósunni.
How To Make Zucchini Cheesy Bread
Cheesy Bread WITHOUT the carbs?! Sign us upFull recipe: http://dlsh.it/37OiH3Y
Posted by Delish on 14. ágúst 2017