Þrátt fyrir að vera líkar í útliti eru áhugamál og val á starfsferli alls ekki eins, Gutiérrez leggur stund á lögfræði og segist jafnvel hafa áhuga á ferli í stjórnmálum. En akkúrat núna rennir hún hýru auga til Ungfrú Alheimur kórónunnar.
Gutiérrez var krýnd Ungfrú Venesúela þann 9. nóvember síðastliðinn og á Instagram skrifaði hún: „Ég er að lifa drauminn minn. Ég er þakklát þeim sem hafa alltaf stutt mig.“
Og þrátt fyrir að líkjast vissulega Kim í útliti, lítur hún ekki til hennar sem fyrirmyndar, heldur segir hún Audrey Hepburn og móður sína fyrirmyndir sínar.