Hin fjögurra ára gamla North skemmti sér konunglega.
Kim nýtti auðvitað tækifærið til að auglýsa nýju ilmvatnslínuna sína.
Gleðisprengjan Chrissy Teigen mætti og skemmti sér á Snapchat ásamt Kris Jenner.
Það var hins vegar Khloé sem vakti mesta athygli, en sögusagnir herma að hún eigi von á barni með kærastanum Tristan Thompson, en það hefur ekki verið staðfest. Við vitum samt að Kardashian fjölskyldan mun segja okkur frá öllu þegar þau vilja og ákveða það.