Söngkonan Rita Ora var ekkert að flækja hlutina og fatavalið á Evrópsku tónlistarverðlaununum í gær en hún mætti á rauða dregilinn í baðsloppi með handklæði um hárið. Skartgripirnir og skórnir voru hins vegar alveg bling bling og Ora var þakinn demöntum um hálsinn.
Þetta var hinsvegar ekki eini klæðnaður Ora þetta kvöld, þar sem hún var bæði kynnir verðlaunanna og kom fram.
Ora smellti sér í annan styttri baðslopp áður en hún steig á svið.