Í dag lýkur sýningunni Píka á Hverfisgötu 16. Linda Jóhannsdóttir sýnir þar píkumyndir sínar.
„Sýningin er gerð til að vekja athygli á píkunni og gera hana sýnilegri í samfélaginu,“ segir Linda. „Sýna bæði fegurð, dulúð og þá töfra sem þær búa yfir og um leið minna á að hvorki hún né heitið á henni sé tabú.“
Hluti ágóða sýningarinnar mun renna til UN Women.
Opnunarboð var fimmtudaginn síðastliðinn og var fullt út úr dyrum. Eins og áður sagði lýkur sýningunni í dag kl. 18.