Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Vogin (23. september – 22. október).
Vogin er friðarstillir heimsins. Hún vill að allt í lífi hennar sé fullkomið. Vogin er barn Venusar (Afródítu) og tilbúin til að fórna öllu til koma á fót fallegu og varanlegu sambandi, að hennar mati auðvitað.
Vogin getur fengið þig til að gera allt sem hún vill um leið og hún lætur þig trúa því að það sé þín ákvörðun. Vogin býr í sínum fullkomna heimi og fer eftir eigin reglum og vill enga truflun við það.
Ef þú ert í sambandi með Vog, og þú reynir að rugla frið hennar og trufla skipulagt líf hennar, þá mun hún elska þig minna og minna þar til hún yfirgefur þig að lokum og þú klórar þér í hausnum yfir af hverju hún fór.