Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Tvíburar (21. maí – 20. júní).
TVÍBURAR – Ég mun elska þig þar til þú reynir að vera klókari en ég
Tvíburinn lætur stjórnast af Merkúr, plánetu samskipta og gáfna. Eldklár heili Tvíburans vinnur hratt og Tvíburinn er svo klókur að hann gæti leyst vandamál alheimsins ef hann gæfi sig í það.
Tvíburinn vill djúpar og vitsmunalega örvandi samræður. En hann vill líka finna að hann sé sá klárasti á staðnum. Ef þú reynir að vera klárari en Tvíburinn, eða enn verra, ef þú reynir að fara í einhverja hugarleiki við hann, þá er sambandið dauðadæmt.
Tvíburinn finnur strax á sér þegar einhver er að reyna að leika sér að honum eða notfæra sér hann. Þannig að ef þú ert í sambandi með Tvíbura, þá er besta ráðið að reyna aldrei að plata hann eða að reyna að vera klárari en hann.