Bókin Sport Calendar 2018 sér um skipulagið bæði fyrir daglega lífið og ræktina og ágóði hennar rennur til góðgerðarmála.
Það sem meira er, dagbókin skartar myndum af íþróttafólki í fremstu röð sem sitja fyrir fáklædd á gullfallegum myndum teknum af Dominika Cuda, sem sjálf er fyrrum íþróttakona.
Átján íþróttamenn af báðum kynjum: boxarar, körfuboltamenn, olympíufarar, ballerínur, hestamenn, crossfitmeistarar og fleiri sitja fyrir og er dagbókin til í tveimur útgáfum, fyrir konur og karlmenn.
Myndirnar voru teknar í nágrenni Varsjá í Póllandi og ágóðinn af sölu dagatalsins rennur til One Year Fund sem sér ungu og upprennandi íþróttafólki fyrir skóm, fatnaði og öðrum búnaði til að stunda íþrótt sína.