En þessi ástarsaga sem hljómaði of góð til að vera sönn, er líklega bara akkúrat það, kjaftasaga.
Heimildarmaður Dailymail, sem er nákominn Pitt, segir að enginn fótur sé fyrir því að þau séu að „deita.“ Lawrence, sem er 28 ára gömul, skildi í síðasta mánuði við leikstjórann Darren Aronofsky, 48 ára, eftir árs samband. Pitt, 54 ára, skildi við Angelinu Jolie í september 2016 og hefur lítið spurst til hans og kvennamála hans síðan.
Samkvæmt heimildum mun Pitt hins vegar hafa haft áhuga á Lawrence í góðan tíma og sett sig í samband við hana eftir að hún skildi í síðasta mánuði. Hann mun hafa fengið númerið hjá henni frá sameiginlegum vini og hert sig upp og hringt. Þar var allavega fyrsta skrefið stigið og hvort það endar með sambandi verður tíminn að leiða í ljós.