Veitingastaðurinn Burro og Pablo Discobar opnaði 10. nóvember 2016 við frábærar viðtökur. „Við félagarnir höfðum lengi gengið með þann draum í maganum að opna veitingastað hér heima með suðuramerísku þema. Þegar kom að því að velja nafn á veitingastaðinn vildum við ekki löng krúsídúllunöfn sem heimamenn ættu erfitt með að bera fram, en samt vildum við hafa nafn á spænsku eða portúgölsku. Orðið Burro þýðir asni sem gengur svona líka vel upp innan hugmyndafræði okkar, það er að taka sig ekki of alvarlega,“ segir Gunnsteinn, einn eigenda Burro.
Á hæðinni fyrir ofan er kokteilbarinn Pablo. „Pablo Discobar varð svo til vegna þess að húsnæðið bauð upp á það að vera með tvo samliggjandi staði. Staðirnir eru ólíkir, en samt tengdir og því urðu nöfnin að passa saman. Burro og Pablo, eða Pablo og Asninn urðu því fyrir valinu. Snillingurinn Sigurður Oddson, sem er listamaður á heimsmælikvarða, hannaði fyrir okkur lógóið og allt í kringum það og erum við virkilega ánægðir með hans verk.“
Lesa má nánar um opnun Burro og Pablo hér.
Það eina sem þú þarft að gera til þess að taka þátt í jóladagatalinu okkar í dag er að:
1) Líka við Bleikt á Facebook.
2) Líka við Burro á Facebook.
3) Skrifa kveðju til okkar í athugasemdakerfinu á Facebook og tagga einn vin sem þú vilt að njóti með þér.
Við drögum á morgun og uppfærum þá þessa frétt með nafni vinningshafa.
Fylgstu með Burro á heimasíðu og Facebooksíðu þeirra.
UPPFÆRT:
Vinningshafi 9. desember er: