fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Horfðu á evrópska kvikmyndahátíð heima í stofu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 8. desember 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í samstarfi við RIFF býður ArteKino kvikmyndahátíðin til kvikmyndaveislu heima í stofu frá 10. – 17. desember.

ArteKino hefur valið tíu framúrskarandi evrópskar kvikmyndir frá síðustu mánuðum og árum og verða þær allar aðgengilegar á netinu til 17. desember fyrir áhorfendur víðsvegar um Evrópu!

ArteKino er evrópsk kvikmyndahátíð sem haldin er á netinu. Hún var stofnuð af ARTE og Festival Scope árið 2016 og í ár býðst áhorfendum frá 45 Evrópulöndum að horfa á tíu kvikmyndir með texta á fjórum tungumálum (frönsku, þýsku, ensku og spænsku). Áhorfendum býðst einnig að kjósa myndina sem hlýtur áhorfendaverðlaun að verðmæti 30,000€. Með því að kjósa gefst áhorfendum möguleiki á að vinna fría verð á Berlin International Film Festival. Markmið ArteKino hátíðarinnar er að bjóða breiðum hópi fólks upp á netaðgang að sjálfstæðum kvikmyndum í fullri lengd sem eiga oft erfitt með að komast í sýningu í kvikmyndahúsum í Evrópu.

Í ár eru meðal annars á dagskránni nokkrar kvikmyndir sem sýndar voru á RIFF 2016, til dæmis Síðasta fjölskyldan (Ostatnia Rodzina) eftir Jan P. Matuszyński og Guðleysi (Bezbog) eftir Ralitza Petrova.

Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ArteKino og þar má einnig horfa á kvikmyndirnar á tímbilinu 10. – 17. desember. Athugið að aðeins er hægt horfa á hverja mynd 5.000 sinnum í heild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Meistararnir vilja fá eina af hetjum EM

Meistararnir vilja fá eina af hetjum EM
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Óttast að byrja án lykilmanns eftir slagsmálin á dögunum

Óttast að byrja án lykilmanns eftir slagsmálin á dögunum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.