Igor Jugovic, leikmaður Fjölnis, átti frábæran leik í dag og skoraði tvö mörk er Fjölnir vann FH 2-1 í Grafarvogi.
,,Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur og ég er heppinn að hafa skorað tvö mörk,“ sagði Igor.
,,Ég skoraði tvö mörk og allir segja að þetta hafi verið fullkomin frammistaða en ég er afturliggjandi miðjumaður. Um leið og maður skorar mark þá er maður maður leiksins!“
,,Ég reyni þetta á æfingum að vippa yfir markmenn, það og að skjóta á lofti eru bestu mörkin að mínu mati.“