Guðmann Þórisson, leikmaður KA, var sáttur með að fá stig gegn KR en liðin skildu markalaus á KR-velli.
Undir lok leiksins virtist KR hafa tekið forystuna en markið var dæmt af. Guðmann veit ekki af hverju.
,,Þetta var algjör jafnteflisleikur og það hefði verið frekar svekkjandi að tapa þessu í endann,“ sagði Guðmann.
,,Ég væri hundóánægður ef ég væri KR-ingur. Ég vissi allavegana ekki hvað hann var að dæma.“
,,Það gæti verið að einhver hafi hlaupið yfir hann þegar hann skýtur en þetta var bara léleg vörn hjá okkur.“