Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður FH, gat brosað í dag eftir 1-0 sigur á Grindavík í Pepsi-deildinni.
,,Þetta var erfiður leikur. Við vissum það svosem fyrir leikinn að þetta yrði erfitt,“ sagði Bjarni.
,,Þetta snýst bara um þrjú stig. Þetta var ekki fallegasti leikurinn en þetta snerist um að verja þetta eina mark.“
,,Við verðum að ná Evrópusætinu og við gerum það ekki öðruvísi en að ná í þrjú stig í þeim leikjum sem eftir er.“