fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
433

Ítarlegt viðtal við Frey – Nokkrar erfiðar ákvarðanir þarna

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. júní 2017 15:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins valdi í dag 23 manna hóp sinn fyrir Evrópumótið í Hollandi sem hefst í næsta mánuði. Fyrsti leikur Íslands er gegn Frakklandi þann 18. júlí en þar á eftir koma leikir gegn Sviss og Austurríki. Liðið setur stefnuna á að koma sér upp úr riðlinum sem gæti reynst erfitt en liðið hefur þó sýnt að í því býr magnaður karakter sem getur komið liðinu langt. Freyr er að gera hlutina í fyrsta sinn en hann er að fara með liðið í fyrsta sinn á stórmót. ,,Þetta var erfitt fyrir mig, það er nýtt fyrir mig að velja lokahóp. Ég hafði reynslu af því að vera í kringum Lars Lagerback og Heimi Hallgrímsson í fyrra, það er ótrúlega margt sem maður þarf að pæla í til þess að vera ánægður með niðurstöðuna sína. Það voru nokkrar erfiðar ákvarðanir þarna,“ sagði Freyr eftir að hann valdi hópinn í gær en mörg spurningamerki voru í hópnum

Gríðarleg meiðsli hafa herjað á íslenska liðið síðustu mánuði og spurningarmerkin hafa verið afar mörg. Besti leikmaður Íslands í mörg ár, Margrét Lára Viðarsdóttir meiddist til að mynda á dögunum. Frá því að liðið komst inn á mótið hefur því staðan breyst mikið og Freyr hefur þurft að taka á mörgum erfiðum málum. ,,Frá því að við komumst inn á mótið og hefði ég skrifað niður 23 manna hóp þar þá er hann eflaust töluvert breyttur, ég skrifaði hann ekki niður samt. Miðað við hvaða leikmenn við vorum að spila á og voru í hóp þá er ýmislegt búið að breytast. Ég er komin yfir þær pælingar og við erum búin að ná rosalega góðum tökum á því sem við erum að gera, andrúmsloftið í hópnum og þeim hlutum sem við urðum að ná tökum á. Það gekk og mér finnst liðið kraftmikið og það er töffaragangur í því.“

Harpa klár nokkrum mánuðum eftir barneign:
Harpa Þorsteinsdóttir er ein af þeim sem er í hópnum en hún var stórt spurningarmerki, Harpa átti barn fyrir nokkrum mánuðum en er mætt inn á völlinn á nýjan leik. Hún er liðinu afar mikilvæg eins og sást í undankeppni EM þar sem hún var markahæsti leikmaður liðsins. ,,Ég met stöðuna fyrst og fremst þannig að hún er frábær leikmaður, hún er markaskorari. Hún er í góðu líkamlegu standi en það vantar kraft, við getum hjálpað henni með það. Við munum ásamt styrktarþjálfaranum gera allt sem við getum og svo verðum við bara að sjá hversu langt hún er komin og hversu mikið við getum notað hana. Hún var markahæsti leikmaður liðsins í undankeppninni og stjarna liðsins, hún þurfti að fá að vita að hún væri að koma inn á ákveðnum forsendum með hlutverk sem er kannski fyrir einhverjum minna hlutverk en getur verið fyrir okkur gríðarlega mikilvægt hlutverk. Að kom inn í leiki með mikinn kraft í 15 til 30 mínútur, það er það hlutverk sem við horfum á hana að hún geti skilað inn hágæða frammistöðu í þann tíma. Þessir íþróttamenn eru keppnismenn og vilja alltaf spila, hún var frábær á þessum fundi þegar við ræddum þessi mál. Hún er svo klár í þetta og veit hvað þetta skiptir miklu máli fyrir, hún er klár í að gera þetta eins og meistari.“

Hólmfríður veit sitt hlutverk:
Annar leikmaður sem er að stíga upp úr meiðslum er Hólmfríður Magnúsdóttir en hún er klár á nýjan leik eftir meiðsli en verður ekki lykilmaður. ,,Hólmfríður kemur inn sem vængbakvörður, okkur vantaði kröftugan leikmann í þá stöðu. Ef það er eitthvað sem Hólmfríður hefur þá er það kraftur og styrkur, hún á aðeins í land með formið. Lykilatriði fyrir hana var að átta sig á í hvaða hlutverki hún verður, hún er ekki að fara þarna inn sem byrjunarliðsmaður. Hún þarf að veita öðrum aðhald, komið inn í stuttan tíma í framlínuna. Hún var flott með þetta og tók þessu hlutverki, reynslan skipti líka máli. Við erum búin að missa út mikið af reynslu og það hjálpaði að hún hefur mikla reynslu.“

Sandra sýndi hroka sem virkaði:
Sandra María Jessen er einnig í hópnum en eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum er hún mætt til leiks og hefur raðað inn mörkum fyrir Þór/KA. ,,Sandra hefur náð ótrúlegum bata, hún hefur sýnt einstakt dæmi um að koma til baka eftir erfið meiðsli. Ég fílaði hrokann í henni í öllum viðtölum, hún var ekki dónalegt eða neitt þannig. Hún sýndi bara að hún er klár í þetta og hún ætlaði sér þetta, hún hefur svo skilað inn mjög góðum frammistöðu og mörkum. Það sem hún hefur svo fram yfir leikmenn á þessum aldri sem eru að spila þessa leikstöðu sem fremsti maður er að hún er góður skallamaður, við þurfum mörk úr föstum leikatriðum og vera klár á fjærstönginni.“

Möguleikarnir 50/50
Freyr segir möguleika liðsins á að fara áfram vera talsverða en segir að allt geti gerst. ,,Eigum við ekki að segja að það sé 50/50, sumir segja við mig að ég eigi að draga úr væntingum en aðrir segja við mig að við eigum að fara upp úr riðlinum. Ég veit ekki alveg hvernig við eigum að horfa á þetta, við förum inn í það með það markmið og erum grjóthörð á því við ætlum upp úr riðlinum. Það verður vissulega erfitt og það þurfa hlutir að detta með okkur, það er augnablikið sem við þurfum að skapa. Leikirnir munu ráðast á litlum atriðum. Ef við förum áfram í útsláttarkeppnina er það svo ekta íslenskt að fara bara alla leið.“

,,Það er stórhættulegt að fara að reikna út einhver stig hér og þar, ég var einu sinni á ferli mínum sem leikmaður með þjálfara sem fór að reikna út stigin og það var algjör vitleysa. Við verðum að einbeita okkur að einum leik í einu, ef við tökum þrjú stig gegn Frakklandi er það bara geggjað. Það reiknar ekki neinn með því, við erum ekki með nein gefins stig. Það er þvæla að hugsa þannig, það þarf fimm stig til að komast upp úr riðlinum. Við þurfum bara að sækja þau sama hvernig það er gert.“

Öflugt starfslið
Freyr fer með 18 manna starfslið á mótið sem er ansi gott, á meðal þeirra sem aðstoða hann eru Heimir Hallgrímsson þjálfari karlalandsliðsins. ,,Það er mjög flott, vð erum búin að leggja mikla vinnu í það að vera með gott starfslið. Við eru með reynslu í hópnum en líka með ungt fólk sem getur þroskast fyrir íslenskan fótbolta. Það eru 18 starfsmenn en eru þó ekki allir á staðnum í einu, mönnum er skipt inn og út. Við erum með styrktarþjálfara, frábæra lækna og sjúkarþjálfara. Útsendara sem skoða liðin, ég held að við höfum ekki yfir neinu að kvarta. Ég er mjög ánægður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sádarnir stórhuga – Ein stjarna að detta inn fyrir dyrnar og nú er horft til Englands

Sádarnir stórhuga – Ein stjarna að detta inn fyrir dyrnar og nú er horft til Englands
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sagði Vilhjálmur prins þetta virkilega meðan heimsbyggðin horfði? – Varalesari fenginn í málið

Sagði Vilhjálmur prins þetta virkilega meðan heimsbyggðin horfði? – Varalesari fenginn í málið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Elvar segir fréttamenn forðast að ræða við Chris – Greinir frá uppákomu á dögunum eftir að slökkt hafði verið á myndavélinni

Elvar segir fréttamenn forðast að ræða við Chris – Greinir frá uppákomu á dögunum eftir að slökkt hafði verið á myndavélinni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Handviss um að Casemiro fari ekki neitt

Handviss um að Casemiro fari ekki neitt
433Sport
Í gær

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar
433Sport
Í gær

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu