,,Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Willum Þór Þórsson þjálfari KR eftir 1-1 jafntefli gegn Blikum í kvöd.
KR-ingar jöfnuðu með marki úr vítapsyrnu í uppbótartíma en KR-ingar eru bara einu stigi frá fallsæti.
,,Mér fannst við geta unnið þennan leik miðað við frammistöðu, við fórum illa með færin okkar.“
,,Svo þegar leið á seinni hálfleikinn þá fóru þeir að verja þetta eina markið, betra að fá eitt stig en ekkert.“