Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með sína menn í kvöld eftir fyrsta sigur sumarsins á Víkingi Reykjavík, 1-0.
,,Það getur vel verið að þetta hafi verið verðskuldað en við lögðum allavegana mikið í leikinn,“ sagði Kristján.
,,Liðinu var breytt vegna frammistöðu og svo þurftum við að raða liðinu upp á nýtt og þurftum að finna nýjar blöndur.“
,,Aðal hugsunin er að vera með tvo framherja. Við vinnum út frá því. Það gekk upp í dag.“