Sigríður Lára Garðarsdóttir, leikmaður ÍBV í Pepsi-deild kvenna, var ánægð í kvöld eftir 1-0 sigur á KR í kvöld í fyrstu umferð.
,,Þetta var bara mjög fínt. Miðað við hvernig undirbúningurinn var fyrir leikinn, það var smá töf en við létum það ekki bitna á okkur,“ sagði Sigríður.
,,Ég veit ekki hvort þetta hafi truflað KR. Þær voru grimmar og það var erfitt að brjóta þær niður.“
,,Við spiluðum bara mjög vel. Uppspilið gekk vel og við vorum að verjast sem heild.“