U16 ára lið karla vann 3-0 sigur á Litháen í dag í öðrum leik liðsins á UEFA Development Tournament, en leikið er í Gargzdai í Litháen.
Róbert Orri Þorkelsson, Valgeir Valgeirsson og Bjartur Barmi Barkarson skoruðu mörk Íslands.
Liðið leikur þriðja, og síðasta, leik sinn á mótinu á laugardaginn þegar það mætir Búlgaríu.
Byrjunarlið Íslands:
Helgi Bergmann Hermannsson (M)
Sigurður Dagsson
Baldur Hannes Stefánsson
Oliver Stefánsson
Róbert Orri Þorkelsson (F)
Orri Hrafn Kjartansson
Davíð Snær Jóhannsson
Valgeir Valgeirsson
Valdimar Daði Sævarsson
Danijel Dejan Djuric
Jóhann Þór Arnarsson