Varalið Nantes mætti Mulsanne-Teloché í Frakklandi um helgina en leiknum lauk með 2-0 sigri Nantes.
Það var Kolbeinn Sigþórsson sem skoraði bæði mörk Nantes í leiknum en hann er að snúa tilbaka eftir erfið meiðsli.
Kolbeinn spilaði síðast aðalliðsleik með Nantes haustið 2016 og hefur hann ekki spilað síðan vegna meiðslá á hné.
Hann var valinn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Mexíkó og Perú í vináttuleikjum í mars í fyrsta skiptið síðan EM lauk.
Meira:
Kolbeinn lítilega meiddur – Spilar líklega ekki gegn Mexíkó
Sjáðu mörkin hér að neðan.
Victoire de la N3 (0-2) face à Mulsanne
🎥Doublé de Kolbeinn Sigthorsson pic.twitter.com/aXcsDgzBhi— FC Nantes (@FCNantes) March 20, 2018