Samkvæmt sérfræðingum Mirror er treyja Íslands í 12 sæti yfir flottustu búningana á HM í sumar.
Treyja Íslands var frumsýnt í síðustu viku en það er Errea sem framleiðir treyjurnar.
,,Ísland fær extra stig fyrir flott myndband í kynningu, Ísland mætir á sitt fyrsta Heimsmeistaramót ekki ósvipað eins og á EM en þó aðeins,“ sagði í frétt Mirror.
Ísland mætir Nígeríu í öðrum leik á HM en samkvæmt Mirror á Nígería flottustu treyjuna á HM í sumar.
Það er Nike sem framleiðir treyju Nígeríu og hún hefur fengið mikið lof. Treyju Nígeríu má sjá hér að neðan.
Smelltu hér til að sjá grein Mirror.
🇮🇸 The new kit is here 🇮🇸#fyririsland #TeamIceland pic.twitter.com/kFaq9mOrga
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 15, 2018