Errea og KSÍ kynntu í síðust viku nýja landsliðstreyju og eru flestir á sama máli um ágæti treyjunnar.
Landsliðið mun klæðast treyjunni á HM í Rússlandi en reikna má með fjölda íslenskra stuðningsmanna á mótinu í sumar.
Treyjan kostar 10.990 krónur en sama verð er á fullorðins treyjum og treyjum fyrir börn.
Errea mun hins vegar kynna til leiks, ódýrari treyju sem hugsuð er fyrir stuðningsmenn Íslands en það er Vísir.is sem greinir frá þessu.
Ekki hefur ennþá verið gefið út hvað stuðningsmannatreyjan mun kosta en hún verður mjög svipuð í útliti og íslenski landsliðsbúningurinn.