Íslenska kvennalandsliðið endar í þriðja sæti í riðli sínum á Algarve mótinu í Portúgal.
Íslenska liðið náði góðu jafntefli gegn Hollandi í síðasta leiknum í riðlinum í dag.
Evrópumeistararnir eru með frábært lið en stelpurnar okkar héldu þeim frá markinu í leiknum og endaði leikurinn 0-0.
ÁÐur höfðu stelpurnar gert markalaust jafntefli gegn Danmörku og tapað 1-2 gegn Japan.
Byrjunarlið Íslands:
Guðbjörg Gunnarsdóttir (M)
Sif Atladóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Selma Sól Magnúsdóttir
Agla María Albertsdóttir
Rakel Hönnudóttir
Fanndís Friðriksdóttir